Benedikt TF3CY verður með fimmtudagserindið
Síðasta erindið á yfirstandandi vetrardagskrá Í.R.A. verður haldið í félagsaðstöðunni í Skeljanesi fimmtudaginn 26. apríl næstkomandi. Benedikt Sveinsson, TF3CY, mun fjalla um RF magnara fyrir tíðnir radíóamatöra. Í erindinu mun hann m.a. fjalla um magnara sem búnir eru lampaútgangi og bera saman við magnara sem búnir eru transistorútgangi, auk þess að koma inn á heimasmíðar. Erindið hefst stundvíslega kl. […]