Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 6. febrúar. Að venju verður húsið opnað kl. 20:00.
Góður félagsskapur, kaffi, te og meðlæti og nýjustu tímaritin.
Eins og gjarnan er á þessum árstíma, berast nýjar sendingar af QSL kortum þétt til landsins. QSL stjóri tæmir pósthólf félagsins sérhvern miðvikudag og sér um að flokka nýjar sendingar í hólfin fyrir opnunartíma á fimmtudagskvöld.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-02-01 12:48:212020-02-01 12:50:07OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 6. FEBRÚAR
Ný vetrardagskrá ÍRA fyrir tímabilið febrúar-maí 2020 var birt í 1. tbl. CQ TF, sem kom út í síðustu viku (sjá bls. 48).
Fjölmargir hafa haft samband og spurt hvort dagskráin verði fáanleg prentuð. Svo verður einnig að þessu sinni og verður hún til afhendingar í Skeljanesi frá og með næsta fimmtudegi, 30. janúar.
Alls eru 27 viðburðir í boði, í flutningi 14 félagsmanna. Margt nýtt kemur inn nú, m.a. hefðbundinn flóamarkaður, sunnudaginn 8. mars. Nýtt fyrirkomulag verður í boði fyrir þá félaga sem óska að selja stöðvar og/eða búnað (verður kynnt þegar nær dregur).
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-28 18:38:192020-01-28 18:43:11NÝ VETRARDAGSKRÁ HEFST Í FEBRÚAR
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-26 23:18:562020-01-27 15:02:31OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 30. JANÚAR
Góð mæting var í Skeljanes fimmtudaginn 23. janúar, þrátt fyrir ekta janúarveður, snjó- og slydduél í allhvössum suðvestan vindsveipum.
TF3MH, QSL stjóri félagsins, hafði flokkað kortasendingar gærdagsins
þannig að flestir fengu kort, auk þess sem áhugaverður fjarskiptabúnaður var
til sýnis.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, kom með ICOM IC-SAT100. Tækið notar Iridium gervitunglin til að koma skilaboðum áleiðis um allan heim, en getur jafnframt notast sem handstöð til fjarskipta (við aðrar slíkar) á landssvæðum þar sem ekki er GSM eða önnur fjarskiptaþjónusta (sjá frásögn í 4. tbl. CQ TF 2019, bls. 40). Ari kom með aðra af stöðvum Ólafs B. Ólafssonar, TF3ML, og var talað við Óla úr Skeljanesi sem var staddur í Árnessýslu (sjá mynd).
Hann kom einnig með þrjú bílnet, AMPRO-80 fyrir 3500-3800 kHz
(2,4m á hæð) og 2375T og 1675T Ham-tenna bílnet frá MFJ fyrir (3800-3900 kHz). Þau
eru annars vegar 91cm og 122cm á hæð. Styttra netið er það létt að þá má nota það
á segulfæti.
Loks kom Ari aftur með 50W FM VHF/UHF stöð frá Vero Telecom (VGC), VR-N7500 með APRS (fyrir þá sem ekki gátu komið síðasta fimmtudag). Óvanaleg stöð, því hún er „andlitslaus“ og er stýrt frá snjallsíma (með „bluetooth“) eða Android spjaldtölvu og er forrituð þráðlaust. Fyrirferðarlítil, ódýr og fær góða dóma.
Skemmtilegt fimmtudagskvöld. Alls mættu 29 félagar og 1 gestur í Skeljanes
í hressilegu vetrarveðri í byrjun Þorra.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-24 14:19:462020-01-24 14:42:18FJÖLMENNI Á FIMMTUDEGI Í SKELJANESI
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-23 10:20:432020-01-27 20:32:591. TÖLUBLAÐ CQ TF 2020 ER KOMIÐ
Með tilvísan til 17. gr. félagslaga er hér með boðað til
aðalfundar ÍRA laugardaginn 15. febrúar 2020.
Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum Heklu 1 á Radisson BLU Hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt 19. gr. félagslaga.
Góð mæting var í Skeljanes fimmtudaginn 16. janúar.
QSL stjóri hafði flokkað kort í hólfin úr sendingum erlendis frá og félagar
komu með á staðinn áhugaverðan búnað sem var til sýnis, auk þess sem félaginu
voru færðar góðar gjafir.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, sýndi nýja 50W
FM VHF/UHF stöð frá Vero Telecom (VGC) af gerðinni VR-N7500 með APRS. Óvanaleg
stöð, því hún er „andlitslaus“ og er stýrt frá snjallsíma (með „bluetooth“) eða Android spjaldtölvu og
er forrituð þráðlaust. Hann kom líka með bílnet fyrir 160 metrana frá AM PRO og
Watson Multiranger-9 bílnet, sem er fyrir 80, 40, 20, 15, 10, 6, 2M, 70CM og
flugvélabandið.
Kristján Benediktsson, TF3KB, kom með eintak
af nýjustu ARRL handbókinni 2020. Þetta er 97. útgáfa, en handbókin kom fyrst
út árið 1926. Nýja handbókin er 1280 blaðsíður í stóru broti. Kristján sagði,
að bókin væri einnig boðin í sex bóka formi sem kostar þá 10 dollurum meira, en
handbókin sjálf kostar 49.95 dollara.
Félaginu bárust ennfremur tvær gjafir. Annars
vegar, vandaður hægindastóll úr formuðu birkilímtré í fjaðrandi grind. Áklæði
er svarbrúnt. Stóllinn kemur í góðar þarfir og var strax fundinn staður í
fundarsal. Gefandi er Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A.
Þá barst félaginu upptaka á geisladiski af
síðustu sendingunni sem fram fór á morsi á 500 kHz frá Gufunes radíói þann 1.
febrúar 1999, þegar sendingar voru lagðar niður á þeirri tíðni. Ólafur K.
Björnsson loftskeytamaður sendi skeytið, sbr. meðfylgjandi ljósmynd. Það var
Sigurður Harðarson, TF3WS, sem gaf félaginu upptökuna. Hann útbjó einnig
upplýsingablaðið með ljósmyndinni af Ólafi. Bestu þakkir til Ara og Sigurðar
fyrir góðar gjafir.
Alls mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes
þetta ágæta fimmtudagskvöld.
Nordics On The Air in Norway Easter 2020 – a YOTA sub-regional ham camp – open for all youngsters
Um páskana verða hinar árlegu “Nordics on the air” ungmennabúðir radíóamatöra haldnar 10.-13. apríl 2020. Við bjóðum ungmennum frá öllum Norðurlöndunum að taka þátt! Helgin verður smekkfull af skemmtilegri dagskrá. Ég var eini Íslendingurinn sem fór á seinasta ári og eignaðist mjög góða vini frá hinum Norðurlöndunum. Það eina sem mér þótti leiðinlegt var að ég þurfti að fara heim.
Hvað gerum við? Dagskráin
snýst helst um eða tengist radíó amatörstarfi á einn eða annan hátt. Við kynnum
nýliða fyrir áhugamálinu en það verður líka dagskrá fyrir lengra komna. Það
verður hið vel þekkta “Alþjóðakvöld” þar sem allir koma með góðgæti frá sínu
eigin landi og allir þátttakendur fá tækifæri til að fara í loftið á LA1YOTA;
með eða án aðstoðar frá reyndari leyfishafa (ef þess er óskað).
Hvar? Helgin fer fram á Camp Killingen, Killingsholmen, sem er lítil eyja suðvestur af Ósló. Tjaldbúðirnar (verðum samt innanhúss) eru á sunnanverðri eyjunni, þar sem við verðum meira og minna út af fyrir okkur, umkringd náttúrunni.
Við viljum fá þig! NOTA eru ungmennabúðir fyrir ungmenni, skipulagt af ungmennum og ykkur er öllum boðið að taka þátt. Ef þú hefur áhuga á að hitta önnur ungmenni sem hafa áhuga á því að fikta með tæki og tól, að tala í talstöðvar, vita hvernig neyðarfjarskipti eða internetið virkar, jafnvel sjónvarpsútsendingar og hvernig símar tala saman í gegnum bæði gervihnetti og símamöstur, eða bara hvernig á að byggja sinn eigin búnað, prufa hann, læra hvernig morskóði virkar og af hverju hann var notaður o.fl. – -þá ENDILEGA sæktu um og taktu þátt! Ég vil fá sem flesta Íslendinga með mér!
Markmiðið með þessu
er að virkja ungmenni í áhugamálinu og fá þá til að kynna sér það betur
heimafyrir og jafnvel kynnast fleiri ungmennum sem þau geta…nördast með.
ATH: ÞAÐ ÞARF EKKI að hafa amatörleyfi til að taka þátt
og sækja um, við viljum bara að þú hafir metnað fyrir áhugamálinu og
viljir kynna þér það betur!
Umsóknarferli í gegnum landsfélag IARU Svæðis 1 IARU (samtök
landsfélaga radíóamatöra á Svæði 1) er styrktaraðili þessara búða og
skilgreinir ungmenni sem fólk á aldrinum 15-26 ára, undanþágur eru – og hafa
verið gerðar – fyrir þátttakendur sem hafa ekki komið áður, t.d. fyrir þátttakendur
sem eru nýir í áhugamálinu og frá smærri landsfélögun eins og ÍRA. Ég sjálf er
28 ára og fór í fyrsta skipti 27 ára. En það hafa verið krakkar allt niður í 13
ára að taka þátt. Það er eitthvað fyrir alla.
Þeir sem hafa áhuga
á að sækja um þurfa að senda umsóknir í gegnum ungmennafulltrúa ÍRA á ira@ira.is. Tekið er á móti umsóknum
frá 9. janúar til 9. Febrúar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður þannig að best
er að sækja um sem fyrst. Ef þú ert ekki félagi í ÍRA skaltu taka það fram í
tölvupóstinum og við kippum því í liðinn.
Gjöld og frekari upplýsingar Það er táknrænt
þáttökugjald upp á 20 evrur / 200 NOK fyrir fullt fæði og gistingu. Frekari
upplýsingar verða sendar til þátttakenda rétt eftir umsóknarfrestinum lýkur.
Aðrar fyrirspurnir skulu
sendast til nota@nrrl.no
73 og vonumst til að sjá ykkur í Noregi í apríl! Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, ungmennafulltrúi ÍRA. The Nordic NOTA organizing team
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-10 13:23:562020-01-10 13:26:47NOTA VERÐUR Í NOREGI UM PÁSKANA 2020
ÍRA barst staðfesting frá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) í dag, 8. janúar 2020, um heimild til notkunar tíðnisviðsins 1850-1900 kHz vegna þátttöku í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2020. Heimildin nær til eftirtalinna keppna:
Heimildin er veitt með fullu samþykki Vaktstöðvar siglinga sem hefur heimild til notkunar nokkurra tíðna á þessu tíðnisviði. Um þessa notkun gilda sömu kröfur og gilda fyrir tíðnisviðið 1810-1850 kHz í reglugerð, en aukin skilyrði Póst- og fjarskiptastofnunar eru eftirfarandi: (a) Heimildin er einvörðungu veitt þann tíma sem tilgreindar alþjóðlegar keppnir radíóamatöra standa yfir (sjá að ofan); (b) G-leyfishafar hafa heimild til að nota fullt afl, allt að 1kW. N-leyfishafar njóta sömu tíðniréttinda, en aflheimild þeirra miðast við mest 10W.
Leyfishafar skulu sækja sérstaklega um heimild til PFS á hrh@pfs.is eða pfs@pfs.is eins og áður.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-07 23:07:182020-01-07 23:08:17NÝ ÍSLENSK KALLMERKI
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 6. FEBRÚAR
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 6. febrúar. Að venju verður húsið opnað kl. 20:00.
Góður félagsskapur, kaffi, te og meðlæti og nýjustu tímaritin.
Eins og gjarnan er á þessum árstíma, berast nýjar sendingar af QSL kortum þétt til landsins. QSL stjóri tæmir pósthólf félagsins sérhvern miðvikudag og sér um að flokka nýjar sendingar í hólfin fyrir opnunartíma á fimmtudagskvöld.
Stjórn ÍRA.
NÝ VETRARDAGSKRÁ HEFST Í FEBRÚAR
Ný vetrardagskrá ÍRA fyrir tímabilið febrúar-maí 2020 var birt í 1. tbl. CQ TF, sem kom út í síðustu viku (sjá bls. 48).
Fjölmargir hafa haft samband og spurt hvort dagskráin verði fáanleg prentuð. Svo verður einnig að þessu sinni og verður hún til afhendingar í Skeljanesi frá og með næsta fimmtudegi, 30. janúar.
Alls eru 27 viðburðir í boði, í flutningi 14 félagsmanna. Margt nýtt kemur inn nú, m.a. hefðbundinn flóamarkaður, sunnudaginn 8. mars. Nýtt fyrirkomulag verður í boði fyrir þá félaga sem óska að selja stöðvar og/eða búnað (verður kynnt þegar nær dregur).
Stjórn ÍRA.
OPIÐ HÚS Í SKELJANESI 30. JANÚAR
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 30. janúar. Húsið verður opnað kl. 20:00.
Góður félagsskapur, kaffi, te og meðlæti og nýjustu tímaritin. Nýjar sendingar af QSL kortum verða klárar og flokkaðar í hólfin.
Stjórn ÍRA.
FJÖLMENNI Á FIMMTUDEGI Í SKELJANESI
Góð mæting var í Skeljanes fimmtudaginn 23. janúar, þrátt fyrir ekta janúarveður, snjó- og slydduél í allhvössum suðvestan vindsveipum.
TF3MH, QSL stjóri félagsins, hafði flokkað kortasendingar gærdagsins þannig að flestir fengu kort, auk þess sem áhugaverður fjarskiptabúnaður var til sýnis.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, kom með ICOM IC-SAT100. Tækið notar Iridium gervitunglin til að koma skilaboðum áleiðis um allan heim, en getur jafnframt notast sem handstöð til fjarskipta (við aðrar slíkar) á landssvæðum þar sem ekki er GSM eða önnur fjarskiptaþjónusta (sjá frásögn í 4. tbl. CQ TF 2019, bls. 40). Ari kom með aðra af stöðvum Ólafs B. Ólafssonar, TF3ML, og var talað við Óla úr Skeljanesi sem var staddur í Árnessýslu (sjá mynd).
Hann kom einnig með þrjú bílnet, AMPRO-80 fyrir 3500-3800 kHz (2,4m á hæð) og 2375T og 1675T Ham-tenna bílnet frá MFJ fyrir (3800-3900 kHz). Þau eru annars vegar 91cm og 122cm á hæð. Styttra netið er það létt að þá má nota það á segulfæti.
Loks kom Ari aftur með 50W FM VHF/UHF stöð frá Vero Telecom (VGC), VR-N7500 með APRS (fyrir þá sem ekki gátu komið síðasta fimmtudag). Óvanaleg stöð, því hún er „andlitslaus“ og er stýrt frá snjallsíma (með „bluetooth“) eða Android spjaldtölvu og er forrituð þráðlaust. Fyrirferðarlítil, ódýr og fær góða dóma.
Skemmtilegt fimmtudagskvöld. Alls mættu 29 félagar og 1 gestur í Skeljanes í hressilegu vetrarveðri í byrjun Þorra.
1. TÖLUBLAÐ CQ TF 2020 ER KOMIÐ
Ágætu félagsmenn!
Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 1. tölublaðs CQ TF 2020, sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni.
Margir hafa lagt hönd á plóg og mörgum ber að þakka, en sér í lagi TF3VS sem annaðist umbrotsvinnu.
73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
Hér má nálgast blaðið: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2020/01/cqtf_34arg_2020_01tbl.pdf
FUNDARBOÐ, AÐALFUNDUR ÍRA 2020
Með tilvísan til 17. gr. félagslaga er hér með boðað til aðalfundar ÍRA laugardaginn 15. febrúar 2020.
Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum Heklu 1 á Radisson BLU Hótel Sögu við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt 19. gr. félagslaga.
Fyrir hönd stjórnar,
Jónas Bjarnason, TF3JB
formaður ÍRA
SKELJANES 23. JANÚAR, OPIÐ HÚS
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 23. janúar.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
QSL stjóri tæmir pósthólfið á miðvikudag og flokkar innkomin kort fyrir opnun á fimmtudagskvöld.
TF3JB kemur með „Knarrevik“ hillueiningu frá IKEA sem verður til sýnis á staðnum.
Stjórn ÍRA.
GÓÐ MÆTING OG GÓÐAR GJAFIR
Góð mæting var í Skeljanes fimmtudaginn 16. janúar. QSL stjóri hafði flokkað kort í hólfin úr sendingum erlendis frá og félagar komu með á staðinn áhugaverðan búnað sem var til sýnis, auk þess sem félaginu voru færðar góðar gjafir.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, sýndi nýja 50W FM VHF/UHF stöð frá Vero Telecom (VGC) af gerðinni VR-N7500 með APRS. Óvanaleg stöð, því hún er „andlitslaus“ og er stýrt frá snjallsíma (með „bluetooth“) eða Android spjaldtölvu og er forrituð þráðlaust. Hann kom líka með bílnet fyrir 160 metrana frá AM PRO og Watson Multiranger-9 bílnet, sem er fyrir 80, 40, 20, 15, 10, 6, 2M, 70CM og flugvélabandið.
Kristján Benediktsson, TF3KB, kom með eintak af nýjustu ARRL handbókinni 2020. Þetta er 97. útgáfa, en handbókin kom fyrst út árið 1926. Nýja handbókin er 1280 blaðsíður í stóru broti. Kristján sagði, að bókin væri einnig boðin í sex bóka formi sem kostar þá 10 dollurum meira, en handbókin sjálf kostar 49.95 dollara.
Félaginu bárust ennfremur tvær gjafir. Annars vegar, vandaður hægindastóll úr formuðu birkilímtré í fjaðrandi grind. Áklæði er svarbrúnt. Stóllinn kemur í góðar þarfir og var strax fundinn staður í fundarsal. Gefandi er Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A.
Þá barst félaginu upptaka á geisladiski af síðustu sendingunni sem fram fór á morsi á 500 kHz frá Gufunes radíói þann 1. febrúar 1999, þegar sendingar voru lagðar niður á þeirri tíðni. Ólafur K. Björnsson loftskeytamaður sendi skeytið, sbr. meðfylgjandi ljósmynd. Það var Sigurður Harðarson, TF3WS, sem gaf félaginu upptökuna. Hann útbjó einnig upplýsingablaðið með ljósmyndinni af Ólafi. Bestu þakkir til Ara og Sigurðar fyrir góðar gjafir.
Alls mættu 27 félagar og 1 gestur í Skeljanes þetta ágæta fimmtudagskvöld.
SKELJANES 16. JANÚAR, OPIÐ HÚS
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 16. janúar.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
Mathías, TF3MH, QSL stjóri, tæmir pósthólfið á miðvikudag og flokkar innkomnar QSL sendingar fyrir opnun á fimmtudagskvöld.
Stjórn ÍRA.
NOTA VERÐUR Í NOREGI UM PÁSKANA 2020
Nordics On The Air in Norway Easter 2020 – a YOTA sub-regional ham camp – open for all youngsters
Um páskana verða hinar árlegu “Nordics on the air” ungmennabúðir radíóamatöra haldnar 10.-13. apríl 2020. Við bjóðum ungmennum frá öllum Norðurlöndunum að taka þátt! Helgin verður smekkfull af skemmtilegri dagskrá. Ég var eini Íslendingurinn sem fór á seinasta ári og eignaðist mjög góða vini frá hinum Norðurlöndunum. Það eina sem mér þótti leiðinlegt var að ég þurfti að fara heim.
Hvað gerum við? Dagskráin snýst helst um eða tengist radíó amatörstarfi á einn eða annan hátt. Við kynnum nýliða fyrir áhugamálinu en það verður líka dagskrá fyrir lengra komna. Það verður hið vel þekkta “Alþjóðakvöld” þar sem allir koma með góðgæti frá sínu eigin landi og allir þátttakendur fá tækifæri til að fara í loftið á LA1YOTA; með eða án aðstoðar frá reyndari leyfishafa (ef þess er óskað).
Hvar? Helgin fer fram á Camp Killingen, Killingsholmen, sem er lítil eyja suðvestur af Ósló. Tjaldbúðirnar (verðum samt innanhúss) eru á sunnanverðri eyjunni, þar sem við verðum meira og minna út af fyrir okkur, umkringd náttúrunni.
Við viljum fá þig! NOTA eru ungmennabúðir fyrir ungmenni, skipulagt af ungmennum og ykkur er öllum boðið að taka þátt. Ef þú hefur áhuga á að hitta önnur ungmenni sem hafa áhuga á því að fikta með tæki og tól, að tala í talstöðvar, vita hvernig neyðarfjarskipti eða internetið virkar, jafnvel sjónvarpsútsendingar og hvernig símar tala saman í gegnum bæði gervihnetti og símamöstur, eða bara hvernig á að byggja sinn eigin búnað, prufa hann, læra hvernig morskóði virkar og af hverju hann var notaður o.fl. – -þá ENDILEGA sæktu um og taktu þátt! Ég vil fá sem flesta Íslendinga með mér!
Markmiðið með þessu er að virkja ungmenni í áhugamálinu og fá þá til að kynna sér það betur heimafyrir og jafnvel kynnast fleiri ungmennum sem þau geta…nördast með.
ATH: ÞAÐ ÞARF EKKI að hafa amatörleyfi til að taka þátt og sækja um, við viljum bara að þú hafir metnað fyrir áhugamálinu og viljir kynna þér það betur!
Umsóknarferli í gegnum landsfélag IARU Svæðis 1 IARU (samtök landsfélaga radíóamatöra á Svæði 1) er styrktaraðili þessara búða og skilgreinir ungmenni sem fólk á aldrinum 15-26 ára, undanþágur eru – og hafa verið gerðar – fyrir þátttakendur sem hafa ekki komið áður, t.d. fyrir þátttakendur sem eru nýir í áhugamálinu og frá smærri landsfélögun eins og ÍRA. Ég sjálf er 28 ára og fór í fyrsta skipti 27 ára. En það hafa verið krakkar allt niður í 13 ára að taka þátt. Það er eitthvað fyrir alla.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja um þurfa að senda umsóknir í gegnum ungmennafulltrúa ÍRA á ira@ira.is. Tekið er á móti umsóknum frá 9. janúar til 9. Febrúar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður þannig að best er að sækja um sem fyrst. Ef þú ert ekki félagi í ÍRA skaltu taka það fram í tölvupóstinum og við kippum því í liðinn.
Gjöld og frekari upplýsingar Það er táknrænt þáttökugjald upp á 20 evrur / 200 NOK fyrir fullt fæði og gistingu. Frekari upplýsingar verða sendar til þátttakenda rétt eftir umsóknarfrestinum lýkur.
Aðrar fyrirspurnir skulu sendast til nota@nrrl.no
73 og vonumst til að sjá ykkur í Noregi í apríl!
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, ungmennafulltrúi ÍRA.
The Nordic NOTA organizing team
HEIMILD Á 160 METRUM ENDURNÝJUÐ
ÍRA barst staðfesting frá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) í dag, 8. janúar 2020, um heimild til notkunar tíðnisviðsins 1850-1900 kHz vegna þátttöku í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2020. Heimildin nær til eftirtalinna keppna:
CQ World-Wide 160 metra keppnin, CW, 24.-26. janúar.
ARRL DX keppnin, CW, 15.-16. febrúar.
CQ World-Wide 160 metra keppnin, SSB, 21.-23. febrúar.
ARRL DX keppnin, SSB, 7.-8. mars.
CQ WPX keppnin, SSB, 28.-29. mars.
CQ WPX keppnin, CW, 30.-31. maí.
IARU HF World Championship keppnin, CW/SSB, 11.-12. júlí.
CQ World-Wide DX keppnin, SSB, 24.-25. október.
CQ World-Wide DX keppnin, CW, 28.-29. nóvember.
ARRL 160 metra keppnin, CW 4.-6. desember.
Heimildin er veitt með fullu samþykki Vaktstöðvar siglinga sem hefur heimild til notkunar nokkurra tíðna á þessu tíðnisviði. Um þessa notkun gilda sömu kröfur og gilda fyrir tíðnisviðið 1810-1850 kHz í reglugerð, en aukin skilyrði Póst- og fjarskiptastofnunar eru eftirfarandi: (a) Heimildin er einvörðungu veitt þann tíma sem tilgreindar alþjóðlegar keppnir radíóamatöra standa yfir (sjá að ofan); (b) G-leyfishafar hafa heimild til að nota fullt afl, allt að 1kW. N-leyfishafar njóta sömu tíðniréttinda, en aflheimild þeirra miðast við mest 10W.
Leyfishafar skulu sækja sérstaklega um heimild til PFS á hrh@pfs.is eða pfs@pfs.is eins og áður.
NÝ ÍSLENSK KALLMERKI
Þátttakendur sem stóðust próf Póst- og fjarskiptastofnunar þann 14. desember s.l., eru allir komnir með kallmerki. Listinn er í stafrófsröð:
Árni Helgason, TF4AH, Patreksfirði.
Björgvin Víglundsson, TF3BOI, Reykjavík.
Eiður K. Magnússon, TF1EM, Reykjavík.
Gunnar B. Pálsson, TF2BE, Reykjavík.
Pétur Ólafur Einarsson, TF3POE, Reykjavík.
Sigurður Kolbeinsson, TF8TN, Reykjavík.
Sveinn Aðalsteinsson, TF1SA, Reykjavík.
Þorsteinn Björnsson, TF4TB, Kópavogi.
Stjórn ÍRA óskar viðkomandi til hamingju og býður þá velkomna í loftið.