Nordics On The Air in Norway Easter 2020 – a YOTA sub-regional ham camp – open for all youngsters
Um páskana verða hinar árlegu “Nordics on the air” ungmennabúðir radíóamatöra haldnar 10.-13. apríl 2020. Við bjóðum ungmennum frá öllum Norðurlöndunum að taka þátt! Helgin verður smekkfull af skemmtilegri dagskrá. Ég var eini Íslendingurinn sem fór á seinasta ári og eignaðist mjög góða vini frá hinum Norðurlöndunum. Það eina sem mér þótti leiðinlegt var að ég þurfti að fara heim.
Hvað gerum við? Dagskráin
snýst helst um eða tengist radíó amatörstarfi á einn eða annan hátt. Við kynnum
nýliða fyrir áhugamálinu en það verður líka dagskrá fyrir lengra komna. Það
verður hið vel þekkta “Alþjóðakvöld” þar sem allir koma með góðgæti frá sínu
eigin landi og allir þátttakendur fá tækifæri til að fara í loftið á LA1YOTA;
með eða án aðstoðar frá reyndari leyfishafa (ef þess er óskað).
Hvar? Helgin fer fram á Camp Killingen, Killingsholmen, sem er lítil eyja suðvestur af Ósló. Tjaldbúðirnar (verðum samt innanhúss) eru á sunnanverðri eyjunni, þar sem við verðum meira og minna út af fyrir okkur, umkringd náttúrunni.
Við viljum fá þig! NOTA eru ungmennabúðir fyrir ungmenni, skipulagt af ungmennum og ykkur er öllum boðið að taka þátt. Ef þú hefur áhuga á að hitta önnur ungmenni sem hafa áhuga á því að fikta með tæki og tól, að tala í talstöðvar, vita hvernig neyðarfjarskipti eða internetið virkar, jafnvel sjónvarpsútsendingar og hvernig símar tala saman í gegnum bæði gervihnetti og símamöstur, eða bara hvernig á að byggja sinn eigin búnað, prufa hann, læra hvernig morskóði virkar og af hverju hann var notaður o.fl. – -þá ENDILEGA sæktu um og taktu þátt! Ég vil fá sem flesta Íslendinga með mér!
Markmiðið með þessu
er að virkja ungmenni í áhugamálinu og fá þá til að kynna sér það betur
heimafyrir og jafnvel kynnast fleiri ungmennum sem þau geta…nördast með.
ATH: ÞAÐ ÞARF EKKI að hafa amatörleyfi til að taka þátt
og sækja um, við viljum bara að þú hafir metnað fyrir áhugamálinu og
viljir kynna þér það betur!
Umsóknarferli í gegnum landsfélag IARU Svæðis 1 IARU (samtök
landsfélaga radíóamatöra á Svæði 1) er styrktaraðili þessara búða og
skilgreinir ungmenni sem fólk á aldrinum 15-26 ára, undanþágur eru – og hafa
verið gerðar – fyrir þátttakendur sem hafa ekki komið áður, t.d. fyrir þátttakendur
sem eru nýir í áhugamálinu og frá smærri landsfélögun eins og ÍRA. Ég sjálf er
28 ára og fór í fyrsta skipti 27 ára. En það hafa verið krakkar allt niður í 13
ára að taka þátt. Það er eitthvað fyrir alla.
Þeir sem hafa áhuga
á að sækja um þurfa að senda umsóknir í gegnum ungmennafulltrúa ÍRA á ira@ira.is. Tekið er á móti umsóknum
frá 9. janúar til 9. Febrúar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður þannig að best
er að sækja um sem fyrst. Ef þú ert ekki félagi í ÍRA skaltu taka það fram í
tölvupóstinum og við kippum því í liðinn.
Gjöld og frekari upplýsingar Það er táknrænt
þáttökugjald upp á 20 evrur / 200 NOK fyrir fullt fæði og gistingu. Frekari
upplýsingar verða sendar til þátttakenda rétt eftir umsóknarfrestinum lýkur.
Aðrar fyrirspurnir skulu
sendast til nota@nrrl.no
73 og vonumst til að sjá ykkur í Noregi í apríl! Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, ungmennafulltrúi ÍRA. The Nordic NOTA organizing team
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-10 13:23:562020-01-10 13:26:47NOTA VERÐUR Í NOREGI UM PÁSKANA 2020
ÍRA barst staðfesting frá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) í dag, 8. janúar 2020, um heimild til notkunar tíðnisviðsins 1850-1900 kHz vegna þátttöku í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2020. Heimildin nær til eftirtalinna keppna:
Heimildin er veitt með fullu samþykki Vaktstöðvar siglinga sem hefur heimild til notkunar nokkurra tíðna á þessu tíðnisviði. Um þessa notkun gilda sömu kröfur og gilda fyrir tíðnisviðið 1810-1850 kHz í reglugerð, en aukin skilyrði Póst- og fjarskiptastofnunar eru eftirfarandi: (a) Heimildin er einvörðungu veitt þann tíma sem tilgreindar alþjóðlegar keppnir radíóamatöra standa yfir (sjá að ofan); (b) G-leyfishafar hafa heimild til að nota fullt afl, allt að 1kW. N-leyfishafar njóta sömu tíðniréttinda, en aflheimild þeirra miðast við mest 10W.
Leyfishafar skulu sækja sérstaklega um heimild til PFS á hrh@pfs.is eða pfs@pfs.is eins og áður.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2020-01-07 23:07:182020-01-07 23:08:17NÝ ÍSLENSK KALLMERKI
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-21 06:57:452019-12-21 06:59:16GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
Jólakaffi ÍRA 2019 var haldið í félagsaðstöðunni fimmtudaginn 19. desember og var það síðasta opnunarkvöld okkar í Skeljanesi á þessu ári. Félagsaðstaðan opnar næst fimmtudaginn 9. janúar 2020.
Í boði var rjómaterta frá Reyni bakara í
Kópavogi, stundum kennd við Hressingarskálann í Reykjavík. Brauðterta með rækjusalati
frá veisluþjónustu Jóa Fel, hátíðakleinur frá Kökugerð HP á Selfossi, hvít
jólaterta og brún jólaterta frá tertugalleríi Myllunnar, jólasmákökur með
súkkulaðibitum frá Kökum og tertum; 17 sortum, Göteborgs jólapiparkökur,
danskar rommkúlur frá Danish Bakery, piperkökuhringur og smáhringir (kleinuhringir)
frá Bakarí Sandholt og súkkulaðirúlluterta frá Meyers Bageri í Kaupmannahöfn.
Kvöldið heppnaðist vel. Alls mættu 32 félagsmenn og 2 gestir í Skeljanes þetta veðurstillta og fagra vetrarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, setti TF3YOTA í loftið frá fjarskiptaherbegi TF3IRA í Skeljanesi 19. desember. Fyrst á 14 MHz og þegar skilyrði hurfu á því bandi skipti hún yfir á gervihnattastöð félagsins til fjarskipta um Es’hail/Oscar 100 gervitunglið. Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins, aðstoðaði Elínu og birti m.a. skemmtilegt myndskeið af fjarskiptunum á Facebook.
YOTA verkefnið hófst í fyrra (2018) og verður starfrækt í desember ár hvert. Það er hugsað til að auka áhuga ungs fólks á amatör radíói. Verkefnið er á vegum IARU Svæðis 1 og eru öll landsfélög radíóamatöra innan Svæðisins þátttakendur (auk landsfélaga á Svæðum 2 og 3).
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, er ungmennafulltrúi félagsins og YOTA verkefnisstjóri ásamt Árna Frey Rúnarssyni, TF8RN. Þau áforma að virkja kallmerkið á sem flestum HF böndum (eftir skilyrðum) út mánuðinn, auk sambanda um OSCAR-100 gervitunglið.
Áramótasending korta frá TF ÍRA QSL Bureau (kortastofu) fer
að þessu sinni fram í janúar 2020. Þá verða öll kort sem borist hafa til
stofunnar (þ.á.m. til smærri staða) póstlögð til kortastofa systurfélaganna um
allan heim.
Síðasti skiladagur vegna áramótaútsendingar 2019/20 verður fimmtudagskvöldið 9. janúar 2020. Þau kort sem berast í QSL kassann í Skeljanesi það kvöld verða örugg með að komast í flokkun og til útsendingar. Gjaldskrá er óbreytt, 10 krónur á kort, sama hvert sem er í heiminum.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-17 10:43:282019-12-17 18:27:05KORTASTOFA HREINSAR ÚT UM ÁRAMÓT
Alls náðu átta einstaklingar prófi til amatörleyfis sem haldið var á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar, laugardaginn 14. desember í Háskólanum í Reykjavík. Þeir eru:
Árni Helgason, Patreksfirði. Björgvin Víglundsson, Reykjavík. Eiður K. Magnússon, Reykjavík. Gunnar B. Pálsson, Reykjavík. Pétur Ólafur Einarsson, Reykjavík. Sigurður Kolbeinsson, Reykjavík. Sveinn Aðalsteinsson, Reykjavík. Þorsteinn Björnsson, Kópavogi.
Stjórn ÍRA
óskar þeim til hamingju og býður þá velkomna í loftið.
http://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.png00TF3JBhttp://ira.is/wp-content/uploads/2016/11/website_head_ira_logo_arial.pngTF3JB2019-12-16 18:37:232019-12-16 18:38:53NÖFN ÞEIRRA SEM NÁÐU PRÓFI
SKELJANES 16. JANÚAR, OPIÐ HÚS
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 16. janúar.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
Mathías, TF3MH, QSL stjóri, tæmir pósthólfið á miðvikudag og flokkar innkomnar QSL sendingar fyrir opnun á fimmtudagskvöld.
Stjórn ÍRA.
NOTA VERÐUR Í NOREGI UM PÁSKANA 2020
Nordics On The Air in Norway Easter 2020 – a YOTA sub-regional ham camp – open for all youngsters
Um páskana verða hinar árlegu “Nordics on the air” ungmennabúðir radíóamatöra haldnar 10.-13. apríl 2020. Við bjóðum ungmennum frá öllum Norðurlöndunum að taka þátt! Helgin verður smekkfull af skemmtilegri dagskrá. Ég var eini Íslendingurinn sem fór á seinasta ári og eignaðist mjög góða vini frá hinum Norðurlöndunum. Það eina sem mér þótti leiðinlegt var að ég þurfti að fara heim.
Hvað gerum við? Dagskráin snýst helst um eða tengist radíó amatörstarfi á einn eða annan hátt. Við kynnum nýliða fyrir áhugamálinu en það verður líka dagskrá fyrir lengra komna. Það verður hið vel þekkta “Alþjóðakvöld” þar sem allir koma með góðgæti frá sínu eigin landi og allir þátttakendur fá tækifæri til að fara í loftið á LA1YOTA; með eða án aðstoðar frá reyndari leyfishafa (ef þess er óskað).
Hvar? Helgin fer fram á Camp Killingen, Killingsholmen, sem er lítil eyja suðvestur af Ósló. Tjaldbúðirnar (verðum samt innanhúss) eru á sunnanverðri eyjunni, þar sem við verðum meira og minna út af fyrir okkur, umkringd náttúrunni.
Við viljum fá þig! NOTA eru ungmennabúðir fyrir ungmenni, skipulagt af ungmennum og ykkur er öllum boðið að taka þátt. Ef þú hefur áhuga á að hitta önnur ungmenni sem hafa áhuga á því að fikta með tæki og tól, að tala í talstöðvar, vita hvernig neyðarfjarskipti eða internetið virkar, jafnvel sjónvarpsútsendingar og hvernig símar tala saman í gegnum bæði gervihnetti og símamöstur, eða bara hvernig á að byggja sinn eigin búnað, prufa hann, læra hvernig morskóði virkar og af hverju hann var notaður o.fl. – -þá ENDILEGA sæktu um og taktu þátt! Ég vil fá sem flesta Íslendinga með mér!
Markmiðið með þessu er að virkja ungmenni í áhugamálinu og fá þá til að kynna sér það betur heimafyrir og jafnvel kynnast fleiri ungmennum sem þau geta…nördast með.
ATH: ÞAÐ ÞARF EKKI að hafa amatörleyfi til að taka þátt og sækja um, við viljum bara að þú hafir metnað fyrir áhugamálinu og viljir kynna þér það betur!
Umsóknarferli í gegnum landsfélag IARU Svæðis 1 IARU (samtök landsfélaga radíóamatöra á Svæði 1) er styrktaraðili þessara búða og skilgreinir ungmenni sem fólk á aldrinum 15-26 ára, undanþágur eru – og hafa verið gerðar – fyrir þátttakendur sem hafa ekki komið áður, t.d. fyrir þátttakendur sem eru nýir í áhugamálinu og frá smærri landsfélögun eins og ÍRA. Ég sjálf er 28 ára og fór í fyrsta skipti 27 ára. En það hafa verið krakkar allt niður í 13 ára að taka þátt. Það er eitthvað fyrir alla.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja um þurfa að senda umsóknir í gegnum ungmennafulltrúa ÍRA á ira@ira.is. Tekið er á móti umsóknum frá 9. janúar til 9. Febrúar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður þannig að best er að sækja um sem fyrst. Ef þú ert ekki félagi í ÍRA skaltu taka það fram í tölvupóstinum og við kippum því í liðinn.
Gjöld og frekari upplýsingar Það er táknrænt þáttökugjald upp á 20 evrur / 200 NOK fyrir fullt fæði og gistingu. Frekari upplýsingar verða sendar til þátttakenda rétt eftir umsóknarfrestinum lýkur.
Aðrar fyrirspurnir skulu sendast til nota@nrrl.no
73 og vonumst til að sjá ykkur í Noregi í apríl!
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, ungmennafulltrúi ÍRA.
The Nordic NOTA organizing team
HEIMILD Á 160 METRUM ENDURNÝJUÐ
ÍRA barst staðfesting frá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) í dag, 8. janúar 2020, um heimild til notkunar tíðnisviðsins 1850-1900 kHz vegna þátttöku í tilgreindum alþjóðlegum keppnum á almanaksárinu 2020. Heimildin nær til eftirtalinna keppna:
CQ World-Wide 160 metra keppnin, CW, 24.-26. janúar.
ARRL DX keppnin, CW, 15.-16. febrúar.
CQ World-Wide 160 metra keppnin, SSB, 21.-23. febrúar.
ARRL DX keppnin, SSB, 7.-8. mars.
CQ WPX keppnin, SSB, 28.-29. mars.
CQ WPX keppnin, CW, 30.-31. maí.
IARU HF World Championship keppnin, CW/SSB, 11.-12. júlí.
CQ World-Wide DX keppnin, SSB, 24.-25. október.
CQ World-Wide DX keppnin, CW, 28.-29. nóvember.
ARRL 160 metra keppnin, CW 4.-6. desember.
Heimildin er veitt með fullu samþykki Vaktstöðvar siglinga sem hefur heimild til notkunar nokkurra tíðna á þessu tíðnisviði. Um þessa notkun gilda sömu kröfur og gilda fyrir tíðnisviðið 1810-1850 kHz í reglugerð, en aukin skilyrði Póst- og fjarskiptastofnunar eru eftirfarandi: (a) Heimildin er einvörðungu veitt þann tíma sem tilgreindar alþjóðlegar keppnir radíóamatöra standa yfir (sjá að ofan); (b) G-leyfishafar hafa heimild til að nota fullt afl, allt að 1kW. N-leyfishafar njóta sömu tíðniréttinda, en aflheimild þeirra miðast við mest 10W.
Leyfishafar skulu sækja sérstaklega um heimild til PFS á hrh@pfs.is eða pfs@pfs.is eins og áður.
NÝ ÍSLENSK KALLMERKI
Þátttakendur sem stóðust próf Póst- og fjarskiptastofnunar þann 14. desember s.l., eru allir komnir með kallmerki. Listinn er í stafrófsröð:
Árni Helgason, TF4AH, Patreksfirði.
Björgvin Víglundsson, TF3BOI, Reykjavík.
Eiður K. Magnússon, TF1EM, Reykjavík.
Gunnar B. Pálsson, TF2BE, Reykjavík.
Pétur Ólafur Einarsson, TF3POE, Reykjavík.
Sigurður Kolbeinsson, TF8TN, Reykjavík.
Sveinn Aðalsteinsson, TF1SA, Reykjavík.
Þorsteinn Björnsson, TF4TB, Kópavogi.
Stjórn ÍRA óskar viðkomandi til hamingju og býður þá velkomna í loftið.
SKELJANES 9. JANÚAR, OPIÐ HÚS
Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi, fimmtudaginn 9. janúar.
Góður félagsskapur, nýjustu tímaritin, kaffi, te og meðlæti.
QSL stjóri félagsins tæmir pósthólfið á miðvikudag, flokkar innkomnar QSL sendingar og gerir klár fyrir opnun á fimmtudagskvöld.
Þá ætlar Wilhelm Sigurðsson, TF3AWS, að koma með Zastone Z218 25W 2M/70CM bílstöðina sína og hafa til sýnis yfir kaffinu.
Stjórn ÍRA.
FÉLAGSAÐSTAÐAN OPNAR 9. JANÚAR
Félagsaðstaðan í Skeljanesi verður næst opin fimmtudaginn 9. janúar.
Áramótakveðjur,
Stjórn ÍRA.
NÝTT CQ TF 26. JANÚAR
Gleðilegt nýtt ár með þökkum fyrir góð samskipti á liðnum árum.
Nú styttist í janúarhefti CQ TF.
Allt efni um áhugamálið er vel þegið í blaðið – frásagnir, ljósmyndir, eða jafnvel aðeins punktar og ábendingar um efni sem vinna má úr.
Skilafrestur efnis er til 12. janúar n.k.
Netfang ritstjóra: tf3sb@ox.is
73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF.
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
ÁNÆGJA MEÐ JÓLAKAFFI ÍRA
Jólakaffi ÍRA 2019 var haldið í félagsaðstöðunni fimmtudaginn 19. desember og var það síðasta opnunarkvöld okkar í Skeljanesi á þessu ári. Félagsaðstaðan opnar næst fimmtudaginn 9. janúar 2020.
Í boði var rjómaterta frá Reyni bakara í Kópavogi, stundum kennd við Hressingarskálann í Reykjavík. Brauðterta með rækjusalati frá veisluþjónustu Jóa Fel, hátíðakleinur frá Kökugerð HP á Selfossi, hvít jólaterta og brún jólaterta frá tertugalleríi Myllunnar, jólasmákökur með súkkulaðibitum frá Kökum og tertum; 17 sortum, Göteborgs jólapiparkökur, danskar rommkúlur frá Danish Bakery, piperkökuhringur og smáhringir (kleinuhringir) frá Bakarí Sandholt og súkkulaðirúlluterta frá Meyers Bageri í Kaupmannahöfn.
Kvöldið heppnaðist vel. Alls mættu 32 félagsmenn og 2 gestir í Skeljanes þetta veðurstillta og fagra vetrarkvöld í vesturbænum í Reykjavík.
Stjórn ÍRA.
TF3YOTA QRV Á Es’hail/Oscar 100
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, setti TF3YOTA í loftið frá fjarskiptaherbegi TF3IRA í Skeljanesi 19. desember. Fyrst á 14 MHz og þegar skilyrði hurfu á því bandi skipti hún yfir á gervihnattastöð félagsins til fjarskipta um Es’hail/Oscar 100 gervitunglið. Ari Þórólfur Jóhannesson, TF1A, VHF stjóri félagsins, aðstoðaði Elínu og birti m.a. skemmtilegt myndskeið af fjarskiptunum á Facebook.
YOTA verkefnið hófst í fyrra (2018) og verður starfrækt í desember ár hvert. Það er hugsað til að auka áhuga ungs fólks á amatör radíói. Verkefnið er á vegum IARU Svæðis 1 og eru öll landsfélög radíóamatöra innan Svæðisins þátttakendur (auk landsfélaga á Svæðum 2 og 3).
Elín Sigurðardóttir, TF2EQ, er ungmennafulltrúi félagsins og YOTA verkefnisstjóri ásamt Árna Frey Rúnarssyni, TF8RN. Þau áforma að virkja kallmerkið á sem flestum HF böndum (eftir skilyrðum) út mánuðinn, auk sambanda um OSCAR-100 gervitunglið.
KORTASTOFA HREINSAR ÚT UM ÁRAMÓT
Áramótasending korta frá TF ÍRA QSL Bureau (kortastofu) fer að þessu sinni fram í janúar 2020. Þá verða öll kort sem borist hafa til stofunnar (þ.á.m. til smærri staða) póstlögð til kortastofa systurfélaganna um allan heim.
Síðasti skiladagur vegna áramótaútsendingar 2019/20 verður fimmtudagskvöldið 9. janúar 2020. Þau kort sem berast í QSL kassann í Skeljanesi það kvöld verða örugg með að komast í flokkun og til útsendingar. Gjaldskrá er óbreytt, 10 krónur á kort, sama hvert sem er í heiminum.
17. desember 2019,
73,
Mathías Hagvaag, TF3MH,
QSL stjóri ÍRA.
NÖFN ÞEIRRA SEM NÁÐU PRÓFI
Alls náðu átta einstaklingar prófi til amatörleyfis sem haldið var á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar, laugardaginn 14. desember í Háskólanum í Reykjavík.
Þeir eru:
Árni Helgason, Patreksfirði.
Björgvin Víglundsson, Reykjavík.
Eiður K. Magnússon, Reykjavík.
Gunnar B. Pálsson, Reykjavík.
Pétur Ólafur Einarsson, Reykjavík.
Sigurður Kolbeinsson, Reykjavík.
Sveinn Aðalsteinsson, Reykjavík.
Þorsteinn Björnsson, Kópavogi.
Stjórn ÍRA óskar þeim til hamingju og býður þá velkomna í loftið.